Lýðræði, umhyggja og hæfni í Aðalnámskrá leikskóla

Höfundar

  • Jóhanna Einarsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2017.5

Lykilorð:

leikskóli, námskrá, gildi, hæfni, lýðræði, umhyggja

Útdráttur

Í rannsókninni sem kynnt er í þessari grein er sjónum beint að þeim gildum og því gildismati sem fram kemur í stefnu leikskóla á Íslandi. Gildin lýðræði, umhyggja og hæfni voru einkum til skoðunar og voru þau valin þar sem þau mynda rauðan þráð í Norrænum leikskólanámskrám. Markmið rannsóknarinnar var að öðlast skilning á þeim gildum sem sett eru fram í Aðalnámskrá leikskóla (2011) og starfsfólki íslenskra leikskóla er ætlað að miðla til leikskólabarna. Rannsóknin er hluti af norrænu rannsóknarverkefni, Values education in Nordic preschools: Basis of education for tomorrow, sem styrkt var af NordForsk. Verkefnið hafði það að markmiði að rannsaka þau gildi sem norrænir leikskólar byggja starf sitt á og skoða og greina hvernig þeim gildum er miðlað til leikskólabarna. Í þeim hluta rannsóknarinnar sem hér er kynnt var þemagreining notuð til að leita uppi og greina mynstur í námskránni og málfarsleg greining var jafnframt gerð á textanum. Niðurstöðurnar varpa ljósi á það hvernig gildin lýðræði, umhyggja og hæfni birtast í aðalnámskránni.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Útgefið

2017-12-28

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)