Áherslur og valdatengsl í samstarfi starfsfólks og foreldra í leikskólum

Höfundar

  • Arna H. Jónsdóttir
  • Jóhanna Einarsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2017.4

Lykilorð:

leikskóli, samstarf við foreldra, valdatengsl, fagmennska, foreldrar af erlendum uppruna

Útdráttur

Niðurstöður fjölda rannsókna benda til þess að samstarf starfsfólks leikskóla og foreldra auki öryggi og vellíðan barnanna og efli nám þeirra. Í Aðalnámskrá leikskóla frá 2011 er lögð áhersla á lýðræðislegt samstarf á jafnréttisgrundvelli milli foreldra, starfsfólks og barna um þátttöku í gerð skólanámskrár, starfsáætlun og mati. Jafnframt kemur fram að leikskólakennarar skuli vera leiðandi við mótun leikskólastarfsins. Markmiðið með rannsókninni sem hér er greint frá var að skoða áherslur og valdatengsl í samstarfi foreldra og starfsfólks og bera það saman við hugmyndir um fagmennsku leikskólakennara. Jafnframt var stefnt að því að skoða samstarf við foreldra af erlendum uppruna. Gögnum var safnað með rýnihópaviðtölum við foreldra barna í fimm leikskólum og í kjölfarið ræddu leikskólakennarar og leikskólastjórar álit og upplifun foreldranna í rýnihópi.

 

Niðurstöður benda til þess að samstarf starfsfólks og foreldra fari fram eftir bæði lóðréttum og láréttum brautum. Áherslur í fagmennsku leikskólakennara virðast því bæði vera hefðbundnar, þar sem leikskólakennarinn lítur á sig sem sérfræðing við mótun leikskólastarfs og skólanámskrár, og lýðræðislegar, þar sem meira er horft til þekkingar foreldranna þegar einstök börn eiga í hlut. Foreldrarnir sögðu að ef allt gengi vel og ekki kæmu upp vandamál skiptu þeir sér lítið af starfinu. Þeir mátu sérfræðiþekkingu leikskólakennara mikils en sögðu að tíð starfsmannaskipti hefðu veruleg áhrif á samstarfið.

 

Starf foreldraráðs var fremur óljóst í hugum samstarfsaðila og það virtist vera látið nægja að skólanámskráin væri þar til umfjöllunar. Rafræn samskipti milli leikskóla og foreldra höfðu aukist og þar var leikskólakennarinn í hlutverki þess sem upplýsir og miðlar. Þegar horft er sérstaklega til samstarfs starfsfólks leikskóla og foreldra af erlendum uppruna, þá virtust þeir oft vera einangraðir og skorta þekkingu á ýmsu því sem íslenskir foreldrar þekktu nokkuð vel. Leikskólakennarar leituðu árangursríkra leiða til að vinna með þeim en sögðu að tungumálakunnátta stæði oft samstarfi fyrir þrifum.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Útgefið

2017-12-28

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>