Sérrit 2026 - Íslenska æskulýðsrannsóknin II
Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun: Sérrit 2026 – Íslenska æskulýðsrannsóknin II er gefið út á vegum Netlu – Veftímarits um uppeldi og menntun og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Greinarnar eru unnar upp úr Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ) en faglegur stjórnandi hennar er Ragný Þóra Guðjohnsen.
Ritstjórar: Kristján Ketill Stefánsson og Valgerður S. Bjarnadóttir. Anna Bjarnadóttir annaðist verkefnisstjórn útgáfunnar fyrir hönd Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands.
Útgáfudagur: 9. apríl 2026
Greinarnar
Í sérritinu eru 2 ritrýndar greinar ásamt inngangi. Auk almenns prófarkalesturs eru ritrýndar greinar lesnar af ritstjórn og rýndar af tveimur sérfræðingum á sviði greinar. Nafnleyndar er gætt við ritrýnina.