„Þeir vilja ekki leika, bara tala saman“ Sýn barna á hlutverk fullorðinna í leik

Höfundar

  • Sara Margrét Ólafsdóttir
  • Jóhanna Einarsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/serritnetla.2017.2

Lykilorð:

leikur, sýn barna, hlutverk fullorðinna, leikskóli

Útdráttur

Niðurstöður rannsókna með börnum gefa til kynna að börn tali um leik þegar þau fást við viðfangsefni sem þau stýra sjálf, taka sér hlutverk og nýta efnivið á fjölbreyttan hátt. Hlutverk fullorðinna er talið mikilvægt í leik barna en hugmyndir um það hvernig nálgast megí leikinn eru ólíkar, allt frá því að stýra eigi leik barna yfir í það að láta hann afskiptalausan. Rannsóknir með börnum sýna að þeim finnst mikilvægt að hinn fullorðni, leikskólakennarinn, fylgist með leiknum og sé nálægur svo hægt sé að leita eftir stuðningi hans. Auk þess vilji börn geta deilt uppgötvunum sínum með fullorðnum.

 

Hér verður greint frá rannsókn sem var gerð með þriggja til fimm ára börnum í tveimur leikskólum á Íslandi. Markmiðið var að öðlast betri skilning á hlutverki leikskólakennara í leik út frá sjónarhorni barna. Myndbandsupptökur af athöfnum barnanna voru notaðar sem kveikja að samræðu við þau. Börnin fengu tækifæri til þess að horfa á upptökurnar, ræða þær og útskýra hlutverk kennaranna í leiknum.

 

Niðurstöðurnar benda til þess að leikskólakennarar séu oftar áhorfendur að leik barna en beinir þátttakendur. Börnin höfðu mismunandi stöðu í leiknum, sum voru ráðandi en önnur fylgjendur. Staða þeirra í leiknum hafði áhrif á það hvernig þau litu á hlutverk kennaranna. Börnin sem voru ráðandi í leik sáu oft ekki hvernig leikskólakennarinn gæti verið þátttakandi í leik án þess að skemma hann en þau sem voru fylgjendur í leiknum þurftu gjarnan á stuðningi leikskólakennarans að halda og sóttust eftir nærveru hans í leik sínum. Rannsóknin gefur innsýn í hlutverk fullorðinna í leik barna. Með því að hlusta á hugmyndir barna um leik og fylgjast með stöðu þeirra í barnahópnum geta leikskólakennarar ígrundað og endurskoðað hlutverk sitt í leik barna.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Útgefið

2017-12-28

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>