Forysta og stjórnun í ungbarnaleikskólum: Áskoranir og úrræði

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2026/2

Lykilorð:

stjórnun , ungbarnaleikskólar, áskoranir, úrræði, vellíðan, gæðastarf

Útdráttur

Hlutverk leikskólastjóra eru fjölþætt og fela í sér margvíslega ábyrgð sem gera starfið annars vegar áhugavert og spennandi og hins vegar krefjandi og flókið. Leikskólastjórar mæta fjölmörgum áskorunum í starfi sínu og því er brýnt að bæði þeir sjálfir og þeir sem koma að stuðningi við þá þekki þau úrræði sem geta reynst gagnleg. Aukin fjölgun barna yngri en tveggja ára í leikskólakerfinu, sem verður á sama tíma og leikskólakennurum fækkar, hefur skapað áskoranir í tengslum við menntun og umönnun yngstu barnanna. Því telja rannsakendur þörf á að beina sjónum sérstaklega að þessum vettvangi. Markmið þessarar rannsóknar er að koma auga á þær áskoranir sem leikskólastjórar við ungbarnaleikskóla fást við í starfi sínu og þau úrræði sem þeir nota til að takast á við þær. Tilgangurinn er að varpa ljósi á hvernig hægt sé að styðja betur við leikskólastjóra, bæta starfsskilyrði þeirra og stuðla að gæðamenntun og vellíðan ungra barna. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar byggir á hugtökunum forysta og stjórnun, fyrri rannsóknum um áskoranir leikskólastjórnenda og þau úrræði sem þeir nýta sér, bæði í faglegu og daglegu starfi leikskólans. Tekin voru viðtöl við fjóra leikskólastjóra sem starfa í ungbarnaleikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Helstu niðurstöður sýna að starfsmannamál eru meðal stærstu áskorana í starfi leikskólastjóranna, þar á meðal skortur á leikskólakennurum og mikil fjarvera vegna veikinda. Úrræði sem leikskólastjórar styðjast við fela einkum í sér að byggja upp traust og samvinnu innan leikskólans og tileinka sér jákvætt viðhorf til starfsins. Niðurstöðurnar geta nýst til að bæta stuðning við leikskólastjóra og starfsskilyrði þeirra og þar með gæði leikskólastarfs yngstu barnanna.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2026-03-05

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar