Avókadó og maís. Orð með rætur í frumbyggjamálum spænsku Ameríku
Lykilorð:
Tökuorð, indíánamál Ameríku, EvrópumálÚtdráttur
Avókadó og maís eru nytjaplöntur sem bárust með landafundamönnum og landkönnuðum frá Vestur-Indíum til Gamla heimsins í lok 15. og á fyrri hluta 16. aldar. Ekki leið á löngu uns Evrópubúar tóku að rækta plönturnar og neyta ávaxtanna sem hétu sama nafni á viðtökumálunum og upprunamálunum. Maís er úr tungumáli indíána á Stóru-Antillaeyjum í Karíbahafi. Avókadó er heiti sem á rætur í nahuatl, máli indíána í Mexíkó. Orðin sem um ræðir eiga að baki langt ferðalag frá Vestur-Indíum til Suður-Evrópu og þaðan norður eftir álfunni til Norðurlandanna. Hér er fjallað um þessi tökuorð í íslensku og öðrum Evrópumálum.
Niðurhal
Útgefið
2020-09-09
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Hvernig skal vitna í
Avókadó og maís. Orð með rætur í frumbyggjamálum spænsku Ameríku. (2020). Milli Mála, 10(1). https://ejournals.is/index.php/millimala/article/view/3191