Útgefið efni
-
Milli mála
Árg. 16 Nr. 2 (2024)Í 16. hefti Milli mála eru fimm ritrýndar greinar um bókmenntir, málvísindi og tungumálakennslu, auk þýðinga á stuttum textum úr taílensku og spænsku.
-
Milli mála
Árg. 16 Nr. 1 (2024)Því minna því meira. Því styttra því betra. Þetta er stundum sagt þegar kemur að skrifum á stuttum textum sem þykja því ágætari því meitlaðri og knappari sem þeir eru. Það er töluverður sannleikur í þessum orðum þótt við viljum ekki ganga svo langt að taka undir með Leonardo da Vinci sem á að hafa sagt að „ekkert“ sé æðsta form listar, tilvera þess sem ekki er. Reyndar eru til örsögur sem ganga út á „ekkert“ og eru ekki nema titill og auð síða. Þá er reiknað með hugmyndaflugi og andagift lesandans. Stutt ritform eiga það til að líða fyrir það að vera stutt. Þess er skemmst að minnast að á smásöguna hefur stundum verið litið sem litlu systur skáldsögunnar og jafnvel sem eins konar æfingu áður en lagt er til atlögu við lengri verk. Í ljósi þessa var Stutt – rannsóknastofa í smásögum og styttri textum sett á laggirnar við Hugvísindasvið Háskóla Íslands fyrir nokkrum árum. Meginmarkmið stofunnar er að efla rannsóknir, þýðingar og miðlun á smásögum og stuttum textum fyrir fræðimenn og þýðendur úr ólíkum áttum. Með styttri textum er meðal annars átt við örsögur, smáprósa, anekdótur, ævintýri, þjóðsögur, fabúlur, exempla, textabrot, strengleika/stuttar ljóðsögur, esseyjur og skemmtisögur. Í raun örverk af hvaða meiði sem er: örleikrit, kjarnyrði, veggjakrot, smáskilaboð, auglýsingar og fleira. Eins og sjá má geta stutt form verið alls konar enda eru þau bæði gömul og ný. Þau hafa fylgt mannkyninu frá aldaöðli. Í janúarmánuði 2023 efndi Stutt – rannsóknastofa í smásögum og styttri textum til málþings um örtexta, gamla og nýja. Þingið var haldið í Veröld og var helsti tilgangur þess að skapa svigrúm fyrir fræðilega umræðu um örstutt bókmenntaverk. Flutt voru sjö áhugaverð erindi um ólíkar gerðir smáverka sem mynda grunninn að þessu hefti. Einnig las Magnús Sigurðsson rithöfundur upp úr nýútkomnu verki sínu en eitt af markmiðum stofunnar er að kynna höfunda, íslenska og erlenda, sem skrifa stutta texta. Í kjölfarið var ákveðið að helga sérhefti Milli mála 2024 efni þingsins. Heftið endurspeglar fjölbreytileika stuttra verka, tekur á nýjum formum, örsögunni, en einnig eldri svo sem ævintýrum, þjóðsögum og dæmisögum, að ógleymdum prósaljóðum, sem oft eru nálægt örsögunni. Við hæfi þótti að gefa argentíska rithöfundinum og örsagnafræðingnum Raúl Brasca fyrstum orðið og fjallar grein hans um eyðuna í örsögunni sem lesandinn fær sjálfur að ráða í. Rebekka Þráinsdóttir segir þar næst frá ljóðum í lausu máli eftir Ívan Túrgenev sem birtust í ritinu Senilia. Aðalheiður Guðmundsdóttir kynnir Ævintýragrunninn og tekur dæmi um nytsemi hans við rannsóknir á íslenskum ævintýrum. Knappir textar Franz Kafka eru til umfjöllunar í grein Ástráðs Eysteinssonar og Kristín Guðrún Jónsdóttir beinir sjónum að sírenum í örsögum og rekur uppruna þeirra sagna til ferða Ódysseifs. Hjalti Snær Ægisson gerir grein fyrir tengslum dæmisagna og helgisagna, en örsögur og smásögur í sagnasveig eftir David Arnason er viðfangsefni Guðrúnar Bjarkar Guðsteinsdóttur. Rýnt er í dæmisögur í Kvöldvökunum 1794 eftir Hannes Finnsson biskup í grein Ásdísar Rósu Magnúsdóttur og að lokum fjallar Áslaug Agnarssdóttir um rithöfundinn Danííl Kharms og rússnesku örsöguna.
Nokkur smáverk af ólíkum toga og uppruna er að finna í heftinu. Rúnar Helgi Vignisson spreytir sig á fundnum formum og gerir jafnframt grein fyrir því hvað átt er við með þessu heiti og hvernig stuttir textar leita gjarnan í stöðluð form. Þá eru birtar nokkrar þýddar örsögur, allt frá fornöld til samtímans, eftir Huainanzi, Valerius Maximus, Leonardo da Vinci, Jules Lefèvre-Deumier, Ívan Túrgenev, Félix Fénéon, Sławomir Mrożek, Joyce Carol Oates, Karla Barajas og úr verkum Zhuangzi.
Ritstjórar þakka höfundum, þýðendum, ritrýnum, prófarkalesara og umbrotskonu frábært samstarf við gerð og frágang heftisins. Einnig þökkum við Styrktarsjóði Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum fyrir ómetanlegan stuðning við útgáfu tímaritsins.
-
Milli mála
Árg. 14 Nr. 2 (2022)Í 14. hefti Milli mála eru sex ritrýndar greinar og ein óritrýnd grein, um bókmenntir, málvísindi og tungumálakennslu, auk þýðinga á stuttum textum úr ýmsum tungumálum.
-
Milli mála - sérhefti
Árg. 14 Nr. 1 (2022)Sérhefti Milli mála 2022 er helgað nýjustu rannsóknum á sviði annarsmálsfræða og inniheldur ritrýndar fræðigreinar um það efni. Gestaritstjóri er Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor í annarsmálsfræðum við Háskóla Íslands. Allar greinar heftisins eru á íslensku.
-
Milli mála
Árg. 13 Nr. 1 (2021)Í 13. hefti Milli mála eru átta ritrýndar greinar um bókmenntir, málvísindi og tungumálakennslu, auk þýðinga á stuttum textum úr ýmsum tungumálum.
-
Milli mála
Árg. 12 Nr. 1 (2020)Í þriðja hefti Milli mála eru sjö ritrýndar greinar um bókmenntir og málvísindi, menningarfræði og tungumálakennslu, auk þýðinga á stuttum textum.
-
Milli mála
Árg. 11 Nr. 1 (2019)Í 11. hefti Milli mála eru fimm ritrýndar greinar um bókmenntir, málvísindi og tungumálakennslu, auk umfjöllunar um þýðingar leikverka og þýðinga á ýmsum stuttum textum.
-
Milli mála
Árg. 10 Nr. 1 (2018)Í tíunda hefti Milli mála eru fjórar ritrýndar greinar um bókmenntir, málvísindi og þýðingafræði, auk umfjöllunar um þýðingu og þýðinga á ýmsum stuttum textum.
-
Milli mála
Árg. 9 Nr. 1 (2017)Í níunda hefti Milli mála eru sjö ritrýndar greinar um bókmenntir og málvísindi, menningarfræði og tungumálakennslu.
-
Milli mála
Árg. 8 Nr. 1 (2016)Í áttunda hefti Milli mála eru níu ritrýndar greinar um bókmenntir og málvísind.
-
Milli Mála
Árg. 7 Nr. 1 (2015)Í sjöunda hefti Milli mála eru tólf ritrýndar greinar um bókmenntir og málvísindi.
-
Milli Mála
Árg. 6 Nr. 1 (2014)Í sjötta hefti Milli mála eru fimm ritrýndar greinar um málvísindi, heimspeki og bókmenntir, auk tveggja annarra greina og þýðinga á stuttum textum.
-
Milli Mála
Árg. 5 Nr. 1 (2013)Í fimmta hefti Milli mála eru sjö ritrýndar greinar um bókmenntir, málvísindi og tungumálakennslu.
-
Milli Mála
Árg. 4 Nr. 1 (2012)Í fjórða hefti Milli mála eru tólf ritrýndar greinar um málvísindi og tungumálakennslu.
-
Milli Mála
Árg. 3 Nr. 1 (2011)Í þriðja hefti Milli mála eru sjö ritrýndar greinar um bókmenntir og málvísindi.