Gildi í samskiptum og leik ungraleikskólabarna
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/serritnetla.2017.3Lykilorð:
yngstu leikskólabörnin, gildi, leikur, gildamenntunÚtdráttur
Markmið rannsóknarinnar var að kanna, út frá sjónarhorni barna á aldrinum eins til þriggja ára í einum leikskóla, hvernig gildi birtast í samskiptum þeirra í leik og hvernig börnin takast á við ágreining um gildi. Í greininni eru niðurstöður rannsóknarinnar ræddar í tengslum við gildamenntun í leikskóla. Rannsóknin fellur undir hugmyndir innan menntunarfræði ungra barna þar sem virkni og hæfni barna til að tjá sjónarmið sín eru í brennidepli. Jafnframt er byggt á kenningum innan fyrirbærafræði þar sem lögð er áhersla á að börn skapi merkingu með líkamlegri tjáningu. Gagna var aflað í frjálsum leik með myndbandsupptökum en auk þess voru vettvangsnótur ritaðar í rannsóknarferlinu. Ígrundun, siðferðilegar vangaveltur og spurningar eru hluti rannsóknar frá upphafi og í gegnum allt rannsóknarferlið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fjögur samtvinnuð meginþemu og tjáningu barnanna á mikilvægum gildum í leiknum; (a) réttindi (b) umhyggja, (c) að tilheyra, (d) agi. Þemun tengjast aðallega tveimur sviðum gilda; annars vegar gildi sem beinast að einstaklingnum og hins vegar gildi sem snúast um barnahópinn eða starf í leikskólanum. Einnig birtist ágreiningur og mismunandi valdatengsl meðal barnanna þegar réttindi og viðurkennd gildi innan hópsins voru dregin í efa eða þeim hafnað. Í augum barnanna voru hinir fullorðnu hluti af þeirra daglega lífi og þau leituðu til þeirra eftir stuðningi í leiknum.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2017 Hrönn Pálmadóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).