Faggreinakennsla á vettvangi: Sjónarmið og viðhorf kennaranema ímeistaranámi í grunnskólakennarafræði

Höfundar

  • Michael Dal
  • Guðbjörg Pálsdóttir
  • Sigurður Konráðsson

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2017.12

Lykilorð:

vettvangsnám, faggreinakennsla, kennaranám, teymisvinna, viðhorf kennaranema

Útdráttur

Í greininni er fjallað almennt um vettvangsnám og hvernig það er skipulagt og framkvæmt í námskeiðinu Faggreinakennsla á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Rannsakað var viðhorf kennaranema í grunnskólakennarafræði og mat þeirra á vettvangsnáminu. Einnig er gerð grein fyrir mismunandi viðhorfum fræðimanna til vettvangsnáms, vægi kennslufræða og faggreina og ekki síst eðli og formi þessa brýna en vandasama hluta kennaranáms. Verkefni og ritgerðir nema í námskeiðinu á árunum 2013–2015 voru greindar og niðurstöður skoðaðar í ljósi hugmynda og markmiða kennara námskeiðsins. Helstu niðurstöður um viðhorf nema eru þær að þeim finnst mjög áhugavert að vinna í teymi í vettvangsnáminu því þannig læri þeir mismunandi kennsluaðferðir og það hjálpi þeim að sjá eigin kennslu í nýju ljósi. Nemum finnst einnig gagnlegt að kynnast mismunandi hugsunarhætti og nálgun í faggreinum. Í námskeiðinu virðast þeir líta á vettvangsnámið sem samstarf sitt og kennara í grunnskóla. Einnig kemur fram að teymisvinna hvetji nema til að samþætta tvö eða fleiri viðfangsefni í kennslu og að þeir ræði um skólastarf og skólamenningu vettvangsskólans. Í umræðum eru niðurstöður ræddar í fræðilegu ljósi og bent á hvað hugsanlega mætti betur fara. Höfundar leggja áherslu á að niðurstöður þessarar rannsóknar á teymisvinnu benda til þess að huga mætti oftar að teymisvinnu þar sem hún á við í vettvangsnámi en hingað til. Enn fremur þarf að auka samstarf Menntavísindasviðs og vettvangsskóla.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Útgefið

2017-11-29

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)