Yndislestur á uppleið? Breytingar á lestrarvenjum drengja og stúlkna

Höfundar

  • Brynhildur Þórarinsdóttir
  • Andrea Hjálmsdóttir
  • Þóroddur Bjarnason

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2017.6

Lykilorð:

lestrarvenjur, lestraráhugi, yndislestur, læsi, kynjamunur, drengjaorðræðan

Útdráttur

Umræðan um slakan lesskilning íslenskra unglinga, einkum drengja, hefur verið hávær undanfarin ár í kjölfar PISA prófanna í lesskilningi. PISA prófin sýna að lesskilningi íslenskra 15-16 ára unglinga hefur hrakað verulega frá árinu 2000, drengir eru mun fjölmennari en stúlkur í hópi slökustu nemendanna og athyglin hefur beinst að því hlutfalli drengja sem „les sér ekki til gagns“. Rannsóknir á bóklestri hafa að sama skapi sýnt minnkandi lestraráhuga barna og unglinga, og að drengir lesa að jafnaði minna en stúlkur.

Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna lestraráhuga 15-16 ára nemenda á Íslandi, og bera íslenska unglinga saman við unglinga annars staðar í Evrópu. Í ljósi orðræðunnar um lestrarvanda drengja eru lestrarvenjur kynjanna bæði bornar saman og skoðaðar í evrópsku samhengi. Gögn eru fengin úr evrópsku ESPAD rannsókninni sem lögð er fyrir 15-16 ára unglinga í álfunni á fjögurra ára fresti.

ESPAD 2015 gefur vísbendingar um að botninum sé náð hvað varðar bókleysi íslenskra unglinga. Meginniðurstöðurnar eru þær að 10. bekkingum sem hafna bókum fer hlutfallslega fækkandi. Dregið hefur saman með stúlkum og drengjum sem aldrei lesa bækur utan skóla; drengir eru ennþá í meirihluta bóklausra nemenda, en kynjamunurinn hefur minnkað úr 20 prósentustigum árið 2003 í 9 prósentustig 2015. Hins vegar dregur í sundur með kynjunum í hópi bókhneigðustu barnanna þar sem stúlkur eru í meirihluta. Munurinn var 6 prósentustig árið 2003 en var orðinn 13 prósentustig árið 2015. Samt sem áður standa íslensku drengirnir hlutfallslega betur en stúlkurnar í hinum evrópska samanburði, bæði í flokki bóklausra og bókhneigðra. Þessar niðurstöður sýna vel hversu einhliða mynd orðræðan um lestrarvanda drengja gefur af lestri unglinga.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2017-10-05

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar