Sjálfbærnimenntun í aðalnámskráleik-, grunn- og framhaldsskóla 2011: Samræmdar hugmyndir eða sundurlausar?

Höfundar

  • Ingólfur Ásgeir Jóhannesson

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2017.5

Lykilorð:

aðalnámskrá, álitamál, geta til aðgerða, sjálfbærnimenntun

Útdráttur

Sjálfbær þróun sem hugtak komst á dagskrá á síðustu árum 20. aldar á alþjóðlegum vettvangi og hér á landi. Þótt hugmyndir hennar væru kunnar skólafólki var það ekki fyrr en í aðalnámskrá leik-, grunn- og framhaldsskóla 2011 sem sjálfbærnimenntun komst fyrir alvöru á dagskrá í opinberri skólastefnu með því að sjálfbærni var gerð að einum af sex svokölluðum grunnþáttum menntunar.

 

Í þessari grein er athugað hvernig hugmyndir um sjálfbærni í grunnþáttakafla aðalnámskrár 2011 eru útfærðar í sérnámskrám fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla til að meta hversu gott samræmi sé milli ólíkra hluta námskrárinnar. Fyrst var lesinn kaflinn um sjálfbærni til að rannsakandi áttaði sig á inntaki hans. Þá var útbúinn greiningarlykill með þremur spurningum og ein þeirra með þremur undirspurningum. Sérhlutar námskrár hvers skólastigs, þar með talinn greinahluti aðalnámskrár grunnskóla, voru lesnir með þessar spurningar í huga.

 

Niðurstöður sýna að hugtökin sjálfbær þróun og sjálfbærni koma sjaldan fyrir í sérhlutum námskránna, oftast þó í greinasviðshluta aðalnámskrár grunnskóla. Hugmyndirnar um sjálfbærni virðast vera útfærðar á ólíkan hátt eftir skólastigum en einnig á ólíkan hátt í mismunandi greinum grunnskóla. Oft virðist útfærslan vera fremur tilviljunarkennd og hugmyndirnar sundurlausar miðað við það sem kemur fram í kaflanum um grunnþætti. Markvissustu dæmin eru í náttúrugreinum í grunnskóla þar sem sérstakur flokkur hæfniviðmiða er nefndur eftir lykilhugtakinu geta til aðgerða. Einnig eru hugmyndir um neytendafræðslu í anda grunnþáttanna víða í ólíkum námsgreinum grunnskólans.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Útgefið

2017-10-03

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>