Aukið álag og áreiti: Áhrif efnahagshrunsins á leikskólastarf
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/netla.2017.2Lykilorð:
efnahagshrunið, leikskóli, rekstrarumhverfi leikskóla, skólastjórnun, starfsaðstæður, faglegt starfÚtdráttur
Síðla árs 2008 varð niðursveifla í hagkerfi Íslendinga sem leiddi af sér efnahagshrun. Í kjölfar þess þurftu sveitarfélög að hagræða í rekstri sínum og beindust aðgerðir meðal annars bæði að leik- og grunnskólum. Áhrif og afleiðingar þessa á starfsemi leikskóla eru tilefni þessarar rannsóknar. Rannsóknin fór fram vorið 2014 og hafði það að markmiði að leita svara við því að hvaða marki leikskólastjórar teldu að niðurskurður í kjölfar hrunsins hefði haft áhrif á starfsemi leikskóla, bæði hvað varðar rekstrarlega þætti og þætti sem snúa að faglegu starfi í leikskólanum. Rafrænn spurningalisti var sendur til 106 leikskólastjóra og var svarhlutfall 64%. Spurt var um þær aðstæður sem sköpuðust í leikskólanum eftir hrun, en einnig um mat leikskólastjóra á áhrifum þeirra. Spurningar voru bæði lokaðar og hálfopnar og megináhersla var lögð á að greina eigindleg svör. Niðurstöður sýna að efnahagshrunið hefur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi leikskóla, ekki hvað síst á starfsmannahald, samráðsfundi kennara og stjórnun. Námskrárgerð og þróunarstarf hefur setið á hakanum og álag á skólastjóra og kennara hefur aukist. Aðrar íslenskar rannsóknir á áhrifum hrunsins á leikskólastarf hafa gefið svipaðar niðurstöður. Það gefur tilefni til að álykta að niðurskurður hafi komið niður á faglegu starfi og að hlúa hafi þurft betur að leikskólum fjárhagslega.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Anna Elísa Hreiðarsdóttir, Eygló Björnsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).