„Allt lítur út fyrir að vera miklu auðveldara hjá þeim“:Upplifun mæðra af umfjöllun áhrifavaldamæðra ásamfélagsmiðlum

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2026/1

Lykilorð:

móðurhlutverkið, samfélagsmiðlar, áhrifavaldar, áköf mæðrun, nýfrjálshyggja

Útdráttur

Hugmyndir um móðurhlutverkið eru í sífelldri mótun og mæður eru undir áhrifum samfélagslegra viðhorfa og menningar í hverju samfélagi fyrir sig. Umfjöllunarefni þessarar greinar er að fá innsýn í upplifun mæðra á Íslandi af umfjöllun áhrifavaldamæðra sem deila lífi sínu á samfélagsmiðlum. Megintilgangur rannsóknarinnar er að verða meðvitaðri um utanaðkomandi áhrif sem foreldrar verða fyrir sökum aukinnar tæknivæðingar í samfélaginu. Fræðin gefa til kynna að mæður beri sig gjarnan saman við það sem þær sjá á samfélagsmiðlum og verði oftar en ekki fyrir neikvæðum áhrifum ef þar er sýnd svokölluð glansmynd. Við gagnaöflun var notast við eigindlega spurningakönnun og gátu allar mæður 18 ára og eldri tekið þátt í rannsókninni. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mæður séu meðvitaðar um þær óraunhæfu myndir sem margar áhrifavaldamæður varpa fram á sínum miðli en upplifi samt sem áður pressu vegna þeirra. Enn fremur var mikill samhljómur um að vilja sjá miðil hjá áhrifavaldamæðrum sem endurspeglaði móðurhlutverkið á fjölbreyttan hátt. Þessi rannsókn gefur innsýn í upplifun mæðra af umfjöllun áhrifavaldamæðra og gefur jafnframt til kynna að þörf sé á frekari rannsóknum á þessu sviði. Áhrifavaldamæður hafa lítið verið rannsakaðar í íslensku samfélagi og því er það von okkar að þessi rannsókn skili sér í aukinni þekkingu á því sviði.

##plugins.themes.default.displayStats.downloads##

##plugins.themes.default.displayStats.noStats##

Niðurhal

Útgefið

2026-02-20

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar