Um Carmen Quintana Cocolina

Authors

  • Erla Erlendsdóttir

Abstract

Carmen Quintana Cocolina fæddist í Santander á norðurströnd Spánar árið 1986. Hún stundaði nám í fjölmiðlafræði við Complutense-háskólann í Madríd og lauk MA-Erasmus Mundus prófi í sömu grein frá Árósaháskóla, háskólanum Pontificia Universidad Católica í Santiago de Chile og háskólanum í Amsterdam árið 2012. Frá árinu 2015 hefur hún kennt skapandi skrif hjá Ritsmiðju Madrídar og hefur að auki verið í nánu samstarfi við Evrópusamtökin um skapandi skrif (EACWP). Um þessar mundir er hún dálkahöfundur hjá dagblaðinu El Diario í Cantabria á Norður-Spáni.

Published

2020-10-01

Issue

Section

Translations