Mat á ritun: Stöðupróf og Viðmiðunarrammi Evrópuráðsins (CEFR).
Útdráttur
Stöðupróf voru haldin í fjórum tungumálagreinum við Háskóla Íslands haustið 2012. Eitt þessara prófa var í dönsku og verður eingöngu rætt um það hér. Prófin og mat á þeim er að franskri fyrirmynd (DELF) út frá CEFR – Viðmiðunarramma Evrópuráðsins. Fjallað er um viðmiðunarrammann og hvaða hlutverki hann gegnir í námi, kennslu og mati á tungumálafærni. Prófin eiga að gefa hugmynd um stöðu nemenda við upphaf náms í dönsku, frönsku, spænsku og þy?sku við Háskóla Íslands. Gerð er krafa um að nemendur sem hefja dönskunám við Háskóla Íslands hafi náð færnistigi B-2 og þyngd prófsins miðast við það. Niðurstöðurnar má nota til samanburðar við næstu próf sama hóps, sem og til samanburðar við næsta hóp ny?nema. Frekari úrvinnsla á niðurstöðunum er áhugavert viðfangsefni bæði til að tengja við þróun, skipulag og áherslur í kennslu.
Lykilorð: Evrópska tungumálamappan, viðmiðunarrammi, mat, ritun, stöðupróf, tungumál
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2015 Þórhildur Oddsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).