Frá viðveru til sveigjanleika: Fjarvinna og umbreyting vinnumenningar í íslenskum fyrirtækjum
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2026.23.1.2Lykilorð:
Fjarvinna, Stjórnun, Vinnumenning, Blandað vinnufyrirkomulagÚtdráttur
COVID-19-heimsfaraldurinn hraðaði innleiðingu fjarvinnu á íslenskum vinnumarkaði og skapaði fágætt tækifæri til að rannsaka hvernig rótgróin viðverumenning innan fyrirtækja tók breytingum. Markmið rannsóknarinnar var að svara þeirri spurningu hvernig stjórnendur í íslenskum fyrirtækjum hafa upplifað og brugðist við breytingum á vinnufyrirkomulagi, stjórnun og vinnumenningu í kjölfar aukinnar fjarvinnu. Byggt er á eigindlegri rannsókn þar sem tekin voru hálfstöðluð einstaklingsviðtöl við átta stjórnendur úr ólíkum atvinnugreinum sem höfðu beina reynslu af innleiðingu fjarvinnu eftir COVID-19. Gögnin voru greind með þemagreiningu. Niðurstöðurnar sýna að aukin fjarvinna var ekki einungis breyting á staðsetningu vinnunnar heldur víðtæk skipulagsleg og menningarleg umbreyting. Fyrirtækin fóru frá vinnuumhverfi þar sem viðvera, sýnileiki og daglegt aðgengi höfðu verið sjálfgefin viðmið yfir í vinnufyrirkomulag sem krafðist aukins sveigjanleika, skýrari verkferla og markvissari samskipta. Jafnframt kom fram að stjórnendur þurftu að endurmóta stjórnun sína frá viðverumiðuðu eftirliti yfir í aukið traust, markvissari eftirfylgni og skýrari ábyrgðarskiptingu, þó með viðvarandi togstreitu milli sjálfstæðis og stjórnunarlegs utanumhalds. Þá sýna niðurstöðurnar að blandað vinnufyrirkomulag hefur fest sig í sessi sem líklegt framtíðarfyrirkomulag en er enn í mótun sem skipulagslegt jafnvægisverkefni. Fræðilegt framlag rannsóknarinnar felst í að sýna hvernig fjarvinna birtist í reynslu stjórnenda sem samverkandi menningarleg og stjórnunarleg umbreyting fremur en eingöngu tæknileg aðlögun. Rannsóknin dýpkar þannig skilning á því hvernig fyrirtæki endurmóta viðveru, ábyrgð, samskipti og félagslega samheldni þegar sveigjanlegir vinnuhættir verða varanlegur hluti af starfseminni. Hagnýtt gildi hennar felst í að varpa ljósi á að árangursrík innleiðing sveigjanlegra vinnuhátta krefst skýrs ramma um ábyrgð, samskipti, upplýsingaflæði og félagslega samheldni ef tryggja á jafnvægi milli framleiðni og vellíðanar starfsfólks.
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Hjördís Sigursteinsdóttir, Ólöf María Stefánsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.