ChatGPT í háskólastarfi, viðhorf og notkun kennara
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2025.34.14Lykilorð:
ChatGPT, háskólakennarar, háskólastarf, skapandi gervigreind, TAM-líkanÚtdráttur
Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf og reynslu háskólakennara af notkun gervigreindarverkfærisins ChatGPT í kennslu og rannsóknum, með hliðsjón af TAMlíkaninu (e. Technology Acceptance Model). Megindleg og eigindleg gögn voru greind út frá svörum 23 kennara við spurningakönnun. Niðurstöðurnar benda til þess að flestir kennarar telji það gagnlegt að nota ChatGPT í kennslu og rannsóknum. Margir þeirra höfðu þó áhyggjur af ChatGPT-notkun nemenda, fræðilegum heilindum og áreiðanleika verkfærisins. Viðhorf kennaranna til ChatGPT mótast meðal annars af gagnsemi verkfærisins og einfaldleika í notkun þess, svo og stuðningi og fræðslu sem þeim býðst. Niðurstöðurnar benda til þess að mikilvægt sé að háskólasamfélagið þrói stefnu um notkun gervigreindarverkfæra og efli gervigreindarlæsi (e. artificial intelligence literacy/AI-literacy) til að stuðla að ábyrgri og skapandi notkun þeirra. Jafnframt er mikilvægt að veita kennurum og nemendum stuðning til að nota tæknina á ábyrgan og árangursríkan hátt.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Jórunn Elídóttir, Sólveig Zophoníasdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.