Launað starfsnám í leikskólakennarafræði: Reynsla leiðsagnarkennara og leikskólastjóra
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2025.34.12Lykilorð:
leiðsagnarkennari, leikskólastjóri, launað starfsnám, vettvangsnám, leikskólakennaranámÚtdráttur
Launað starfsnám hefur staðið nemendum á lokaári í kennaranámi til boða frá haustinu 2019. Í fyrri rannsókn var reynsla nema af launuðu starfsnámi skoðuð. Þar kom fram að þeir voru ánægðir með starfsnámið og töldu helsta ávinninginn felast í aukinni fagmennsku. Niðurstöðurnar sýna þó að um fjórðungur nema taldi sig sjaldan eða aldrei hafa fengið þá leiðsögn sem lagt er upp með í samningi um launað starfsnám. Í þessari rannsókn var markmiðið að kanna reynslu leiðsagnarkennara og leikskólastjóra af starfsnáminu. Gögnum var safnað með rýnihópaviðtölum við leiðsagnarkennara og leikskólastjóra sem höfðu sinnt leikskólakennaranemum í launuðu starfsnámi. Spurt var um sýn á eigið hlutverk í starfsnáminu og reynslu þátttakenda af því. Leiðsagnarkennararnir töldu hlutverk sitt einkum felast í því að styðja nemann í starfi en leikskólastjórar áttu erfiðara með að átta sig á sínu hlutverki. Niðurstöðurnar sýna fram á ávinning af launuðu starfsnámi, fyrir nemann, leiðsagnarkennarann og faglegt starf leikskólans.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, Svava Björg Mörk

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.