Viðhorf foreldra til eigin hlutverks og hlutverks leikskólans í mótun félags- og tilfinningahæfni barna við upphaf grunnskólagöngu
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24270/tuuom.2025.34.9Lykilorð:
félags- og tilfinningahæfni, skólaskil, leikskóli, grunnskóli, foreldrarÚtdráttur
Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á viðhorf foreldra til eigin hlutverks og hlutverks leikskólans í mótun félags- og tilfinningahæfni barna við upphaf grunnskólagöngu. Sú hæfni er ekki aðeins mikilvæg fyrir frammistöðu í námi heldur einnig fyrir virkni barna í lýðræðislegu samfélagi og í samskiptum við jafningja og kennara.
Rannsóknin er byggð á eigindlegum viðtölum við foreldra níu barna sem hófu nám í grunnskóla haustið 2023. Niðurstöðurnar sýna að foreldrar leggja mikla áherslu á þróun félags- og tilfinningahæfni barna sinna, þar á meðal vináttu, tillitssemi, sjálfstjórn og tilfinningagreind, sem grundvöll að farsælu námi og vellíðan í grunnskóla. Foreldrar lýstu því hve mikilvægu hlutverki leikskólinn gegnir í að styðja þessa hæfni og hvernig heimsóknir í grunnskóla auðvelda börnum aðlögun. Rannsóknin varpar ljósi á mikilvægi samstarfs foreldra, leikskóla og grunnskóla við að efla félags- og tilfinningahæfni barna. Framlag hennar felst í því að dýpka skilning á væntingum foreldra og benda á mikilvægi góðrar félags- og tilfinningahæfni barna.
##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2025 Edda Rósa Gunnarsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Tímaritið er öllum opið samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 International License.