Anthony Shadid: Night Draws Near. Iraq´s People in the Shadow of America´s War
##doi.readerDisplayName##:
Útdráttur
Okkur berast daglega fréttir af manndrápum í Írak, óhætt er að nota orðið blóðbað um þá atburði sem hafa átt sér stað í landinu síðastliðin tvö og hálft ár. Og eftir því sem á hefur liðið hafa þær fréttir líklega hætt að vera til þess fallnar að dýpka skilning okkar á framvindu mála í Írak. Þær eru keimlíkar dag frá degi, upptalning á mannfalli dagsins. Það kemur því vel á vondan að nú hefur bandaríski blaðamaðurinn Anthony Shadid sent frá sér bók, Night Draws Near: Iraq’s People in the Shadow of America´s War, sem veitir einstæða innsýn inn í það hvernig málum vatt fram mánuðina eftir innrás Bandaríkjamanna í mars 2003 og hvernig venjulegir Írakar hafa upplifað atburði þá sem átt hafa sér stað frá því að Bandaríkjastjórn einsetti sér að velta stjórn Saddams Husseins í Írak.Niðurhal
Útgefið
15.12.2005
Tölublað
Kafli
Bókadómar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.