Réttmæti skattheimtu
##doi.readerDisplayName##:
Útdráttur
Hráefni og orkugjafar jarðar mynda stofninn að margháttuðu úrvinnsluferli um alla jörð - ferli sem birtist í flestum athöfnum og viðskiptum manna, framleiðslu jafnt sem þjónustu af óendanlega fjölbreyttum toga, sem á endanum miðar að einhvers konar neysluverðmætum. Hvert sem gjaldið er eða skatturinn sem hið opinbera heimtir af þessum athöfnum og viðskiptum, og hvort sem það heimtist af frumvinnslu, úrvinnslu eða af hvers kyns þjónustu, af rekstri, af fjármagni eða af almennum tekjum einstaklinga, þá er það í raun ávallt almenningur sem greiðir reikninginn að lokum, burtséð frá því hversu einfalt eða flókið ferli hefur annars mótað hinn margvíslega neysluvarning eða gert þjónustu kleifa, allt frá frumrótum.Niðurhal
Útgefið
15.06.2010
Tölublað
Kafli
Erindi og greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.