Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2011.7.2.15Lykilorð:
Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmda, lög um mat á umhverfisáhrifum, tilskipun 85/337, sammögnunaráhrif.Útdráttur
Í greininni er fjallað um ákvæði um sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum í 2. mgr. 5. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Meginmarkmið ákvæðisins er að upplýsa um heildaráhrif framkvæmda á umhverfið áður en ákvarðanir um þær eru teknar. Vegna álitaefna sem upp hafa komið í tengslum við framkvæmd ákvæðisins er í greininni leitast við að skýra tilurð þess og efni með hliðsjón af lögskýringargögnum, framkvæmd þess og reglum tilskipunar 85/337/EBE eins og hún hefur verið tekin upp í EES-samninginn. Í greininni er komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði fyrir beitingu ákvæðisins hafi skýrst í framkvæmd. Framkvæmdin veki jafnframt spurningar um hvort ná megi markmiðum ákvæðisins jafn vel, með einfaldari leiðum sem samræmast tilskipun 85/337/EBE eins og hún hefur verið skýrð af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.Niðurhal
Útgefið
15.12.2011
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.