Nýtt landslag ábyrgðar og faglegs umboðs: Sjónarhorn faglegra stjórnenda sveitarfélags og tengiliða í leik- og grunnskólum á innleiðingu farsældarlaganna
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.13177/irpa.a.2026.22.1.7Lykilorð:
Starfstengt svigrúm, Faglegt rými, Kerfasamstarf, Ábyrgðarskylda, MenntastefnufræðiÚtdráttur
Þrátt fyrir aukna vitund og lagaleg úrræði eru börn í síauknum mæli berskjölduð fyrir aðstæðum sem hafa áhrif á líðan og þroska. Farsældarlögin voru sett til að tryggja snemmtæka íhlutun og samþætta þjónustu fyrir börn og fjölskyldur. Lögin skilgreina hlutverk fagfólks í stuðningi og aðgengi að úrræðum. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á hvernig starfsfólk með bakgrunn í menntavísindum túlkar og framkvæmir hugmyndir farsældarlaganna í daglegu starfi, bæði á stjórnsýslustigi sveitarfélaga og í leik- og grunnskólum. Jafnframt er skoðað hvernig innleiðingin mótar starfstengt svigrúm, faglegt rými og ábyrgðarskiptingu milli fagstétta og kerfa í breyttu samstarfs- og stjórnsýsluumhverfi. Rannsóknin byggir á viðtölum við þrjá verkefnastjóra sveitarfélags á höfuðborgarsvæðinu og sjö tengiliði í leik- og grunnskólum í sama sveitarfélagi. Niðurstöður sýna að tengiliðir gegna lykilhlutverki í samskiptum við þá sem koma að málefnum barna, samhæfingu verkefna og upplýsingamiðlun, en hlutverkið er margþætt og krefjandi og mótast af skólastigi, aðgengi að úrræðum og stofnanalegu samhengi. Þátttakendur lýsa óljósri ábyrgðarskiptingu milli þjónustustiga, vöntun á stöðugildum og brotakenndri þjónustu sem ýtir undir frávarp ábyrgðar og þrengir faglegt svigrúm. Rannsóknin varpar þannig ljósi á gjá milli stefnumiða og framkvæmdar. Gagnadrifin formfesta, úrræðaskortur og óskýr verkaskipting grafa undan markmiðum um snemmtæka og samþætta þjónustu. Fræðilegt framlag rannsóknarinnar felst í að tengja menntastefnufræði við hugmyndir um faglegt umboð og lögsögu fagstétta í daglegri framkvæmd. Hagnýtt framlag greinarinnar liggur í að skýra hvaða stjórnsýslu- og skipulagsþætti þurfi að styrkja til að markmið laganna nái fram að ganga.
Niðurhal
Útgefið
Tölublað
Kafli
Leyfi
Copyright (c) 2026 Guðrún Ragnarsdóttir, Díana Ívarsdóttir, Eyrún Rúnarsdóttir

Greinar í tímaritinu eru gefnar út undir leyfinu (Creative Commons Attribution 4.0 International License).

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.