Páll Valsson: Vigdís - kona verður forseti
DOI:
Abstract
Í umsögn gagnrýnanda kemur meðal annars eftirfarandi fram: [Vigdís] hafði löngu fyrir forsetaframboð sitt valið sér það hlutskipti í lífinu að þjóna landi sínu og þjóð, og sýna menningu hennar og sögu alla þá virðingu sem hún greinilega ber í brjósti. Það skipti eflaust líka miklu að hún hafði sem fyrirmyndir sterkar konur, sem höfðu séð meira af heiminum en flestir Íslendingar höfðu á fyrri hluta síðustu aldar. Bók Páls Valssonar um Vigdísi Finnbogadóttur ætti að vera skyldulesning fyrir alla þá sem vilja öðlast skilning á íslensku samfélagi í dag. Fyrir utan að gefa góða mynd af þessari glæsilegu konu er hún merkileg heimild um íslenskt (og kannski einna helst reykvískt) samfélag á síðustu öld. Þetta er bók sem óhætt er að mæla með.Downloads
Published
2009-12-15
Issue
Section
Book Reviews
License
This work is licensed under a Creative Commons Attribution 4.0 License.