Ráðskast með stjórnarskrá
DOI:
Abstract
Úr niðurstöðum: Að mínu viti er augljóst að niðurstaðan er hvorki nægilega upplýst né um hana nægileg samstaða til að hægt sé að setja lokapunkt við ferlið. Stór hluti hinnar sérfræðilegu vinnu er eftir, þar á meðal mat á einstökum tillögum og samhengi þeirra. En það skiptir líka máli að stór hluti hinnar pólitísku vinnu er eftir. Víða eru gerðar sérstakar kröfur til stjórnarskrárbreytinga um aukinn meirihluta til að stuðla að breiðri samstöðu um niðurstöðurnar. Á Íslandi virðist hins vegar ferlið hafa verið hannað til að koma í veg fyrir aðkomu þeirra sem höfðu efasemdir um róttæka uppstokkun stjórnarskrárinnar. Aftanmálsgrein: Upphaflega flutt sem erindi á ráðstefnu Háskóla Íslands í samvinnu við háskólana á Bifröst, Reykjavík og Akureyri föstudaginn 9. nóvember 2012 "Eru þingmenn bundnir af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á íslensku stjórnarskránni?" Heiti erindisins var "Á byrjunarreit eða í endatafli: Hvar stendur stjórnarskrárvinnan?"Downloads
Published
2025-04-12
Issue
Section
Articles and speeches
License
Copyright (c) 2025 Gunnar Helgi Kristinsson

This work is licensed under a Creative Commons Attribution-NonCommercial-ShareAlike 4.0 International License.

This work is licensed under a Creative Commons Attribution 4.0 License.