Um tímaritið

Tímaritinu er ætlað að vera vettvangur fyrir fræðilegar ritgerðir í viðskipta- og hagfræði. Útgefendur eru Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild Háskóla Íslands, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og Seðlabanki Íslands. Í ritnefnd sitja fulltrúar allra aðila ásamt ritstjóra. ISSN nr. vefútgáfu er 1670-4851.

Tímarit um viðskipti og efnahagsmál er gefið út tvisvar á ári, um miðjan júní og um miðjan desember. Skilafrestur greina er 1. apríl fyrir vorheftið og 1. október fyrir haustheftið. Vorið 2023 er skilafrestur greina þann 11. apríl. Sniðmát fyrir greinar má finna hér.

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands hefur umsjón með útgáfuferli tímaritsins.

Nýjasta tölublað

Árg. 21 Nr. 2 (2024): Hausthefti
Útgefið: 20.12.2024

Ritrýndar greinar

Skoða öll tölublöð